02apríl

Smá innlegg!

Ef að það yrðu veitt verðlaun fyrir versta bloggarann í heiminum, þá væri það klárlega ég J En mér finnst það bara vera heiður J

Ég er bara svona nokkuð hress, skólinn gengur sinn vanagang, en eflaust mætti hann samt ganga betur ...Þessi helvítis stærðfræði er að gera út af við mig :-S

Það er ábyggilega alveg slatti mikið búið að gerast hjá mér síðan ég bloggaði síðast en ég nenni nú samt ekki að fara að telja allt upp :p

Ég átti afmæli þann 14.mars og dagurinn var bara alveg æðislegur J Fékk rosalega mikið af alveg æðislegum gjöfum og þakka ég alveg kærlega fyrir mig J

Á laugardeginum fórum við Ragna síðan heim til Sævars frænda sem á einnig afmæli 14.mars eins og ég J Þar var svaka party og mikið fjör J

Amma og afi komu til okkar í byrjun febrúar og það var Rosa gaman að hafa þau J

Síðan komu mamma, pabbi og Andrea til okkar núna í mars og voru í 2 vikur, Æðislegast í heimi að hafa þau J

Þessi vika er ekki búin að vera sú skemmtilegasta, er búin að vera ógeðslega veik:S Hef svo engan tíma í það en ég er nú vonandi eitthvað að skána J

En ég nenni ekki að blogga meira, ætlaði bara að henda eitthverju inn, kem með ferskt blogg von bráðar J

Elva kveður með brotið hjarta! :S

02. apríl 2008 klukkan 23:44
Elva
3 athugasemdir
23janúar

Já sæll!!!!

"Þetta er bensínstöð ekki KJÖTBORÐ" hehe

Frá mér er allt gott að frétta, skólinn er byrjaður og svona þannig að það fer að verða nóg að gera :) Sem er svosem ágætt þar sem að ég er ekki búin að gera neitt annað en að liggja í leti :p

Við erum búin að koma okkur fyrir hér í Ferjubakkanum, allt orðið voða kósý :) Getið séð myndir inn á www.picasaweb.google.com/elvuzinn ...
Það er alveg rosalega þægilegt að vera hérna, maður heyri mjög lítið á milli íbúða þannig séð.. Held samt það sé eitthver spretthlaupari sem er nýflyttur í íbúðina hérna fyrir ofan mig, vegna þess að það er bara stundum verið að hlaupa fram og tilbaka :p Svona ykkur að segja að þá er bara alls ekkert svo slæmt að búa í póllandi... frekar mikið um pólskí hérna en þeir/þau eru bara ekkert verri en hvað annað fólk, held ég nú :)

Ég fékk mjög síðbúna afmælisgjöf um daginn. Ég fékk ferð til spánar - Albir frá mömmu og pabba, þau eru náttúrulega bara best í öllum heiminum ;* Það er semst 23 manna hópur sem er að fara saman, verður eflaust skemmtilegast í heimi :) Ég og Heiðrún gerum ekki annað en að skipuleggja ferðina, þannig að hún verði nú sem allra skemmtilegust :) Eins gott að maður fari nú að stunda ræktina til að fá smá sixpack:p heheh

Annars er voðalega lítið að frétta frá mér, ætla bara að láta niður hér nokkra punkta um það sem er svona á næstunni hjá mér, fyrir utan lærdóm og vinnu ;)

  • Ég er að fara út að borða og í bíó á föstudaginn eða laugardaginn með gellunum í vinnunni
  • Benny Benassi á Brodway 2.feb
  • Amma og afi koma í heimsókn til okkar í byrjun febrúar
  • Það verður svaka partý þegar ég verð loks 20 ára þann 14 mars :)
  • Páskafríið byrjar eftir skóla 14.mars og er til 26.mars
  • Mamma, pabbi og Andrea koma til okkar um páskanna
  • Whitesnake í Laugardalshöll 10.júní
  • Spánn 12.júní :D

Þetta er svona það helsta sem ég veit um núna :) gaman,gaman!!

En núna kveð ég að sinni og vonast til að sjá sem flest comment, I love it!!!!


23. janúar 2008 klukkan 21:32
Elva
7 athugasemdir
06janúar

dangerous girl I am buurning for your love ;)

Jæja þá, tíminn flýgur áfram :)

Ég er búin að hafa það of gott herna heima, geri ekki annað en að hanga í tölvunni, borða og sofa :)
Er nú samt farin að hlakka óbærilega til að komast heim í nýju íbúðina mína á morgun :)

Ég er að fara á morgun upp í skóla til þess að ná í stundartöfluna mína og síðan byrjar skólinn aftur á fullu á fimmtudaginn, sem verður eflaust alveg ágætt :)

Ég fór á djammið annan í jólum og það var alveg ljómandi skemmtilegt :) Fyrst fór ég til Guðbjargar og vorum við þar í party og co, skelltum okkur síðan niður á bar og þar var dansað alveg heilan helling.. og síðan endaði kvöldið með alveg ágætispartýi hjá honum Arnari og ég og Gissur skriðum heim um 6 leytið :)

Áramótin voru róleg hjá okkur gömlu hjónunum :) Ég var ekki í neinu svaka stuði í eitthvað djamm þannig að ég ákvað bara að vinna á barnum og dró gamla manninn með mér :) Það var svosem alveg ágætt, það var alveg hræðilega lítið fólk þarna og ég efast um að fólk hafi fundist gaman, en það var víst svaka partý hjá Petru :)
Við lokuðum kl hálf 4 og þá skriðum við bara upp í rúm, horfðum á mynd og höfðum það kósý :)

Gissur og Karmella lögðu síðan af stað suður um hádegi á nýjársdag með alveg helling af dóti til þess að við getum nú gert íbúðina okkar flotta :)

En, ég er semst að fara suður á morgun og þar sem að við erum ekki komin með netið ennþá að þá efast ég um að það verði eitthvað blogg frá mér á næstunni ...
Ég er búin að henda inn slatta af myndum inn á myspace síðuna mína, svona fyrir þá sem að eru með myspace ;)

Ég kl 00:00 á Gamlárskvöld :)
-Ég kl 00:00 á Gamlárskvöld :)


En núna kveð ég í bili, reyni að blogga eins fljótt og ég get ;)
 -Mér finnst rosa gaman að fá comment ;)

Elvuz kveður með bros í hjarta ;p
06. janúar 2008 klukkan 22:28
Elva
9 athugasemdir
26desember

Annar í jólum og löngu komin heim :)

Ætla nú að byrja á því að óska öllum gleðilegra jóla og ég vona að allir hafi það bara jafn gott og ég :)

Það er alveg æðislegt að vera heima í rólegheitum, ég kom hingað 13 des og er ekki búin að gera rassgat síðan ég kom nema bara dunda mér :) Baka, taka til, búin að fara 2x í sund og margt annað skemmtilegt :D

Aðfangadagur var mjög svo ljúfur, maturinn var æði og ég/við fengum margt fallegt í jólagjöf :)

Í gær fórum við síðan í jólaboð til egilstaða og það var bara mjööög gaman :)

Í kvöld er stefnan tekinn niður á bar þar sem Yxna er að fara að spila :) þetta verður án efa skemmtilegt kvöld :D

Gissur er núna á leiðinni til mín, það verður svo ljúft að sjá hann .. er ekki búin að hitta hann síðan 8 des, held ég :S

Síðan er Ragna mín að koma til Vopnafjarðar núna 29 des :D Það verður algjört æði :D

En ég held að það sé komin tími til að segja frá því að ég og Gissur fengum lyklanna af íbúðinni okkar í hendurnar 1 des :D Eg hlakka svooo til að fara suður og byrja að flytja inn og raða :D
Gissur er búin að mála hana hátt og lágt þannig að hun er orðin svona fín :)
Tengdó gaf okkur síðan 250.000 kall til að nota eingöngu í það að kaupa e-ð í búið :) Þannig að við erum búin að fjárfesta í ískáp, uppþvottavél, þurrkara og þvottavél .. og eigum enn smá eftir af þessum pening sem við gætum þá notað í eldhúsborð og eldhússtóla :) lúxus ... :)

Þessi önn í skólanum gekk síðan alveg ágætlega bara, ég náði öllum prófunum :D ekki neitt smá stolt með það :) Og ég er bara strax farin að hlakka til að byrja aftur :) Líka svo rosa stutt fyrir mig að fara í skólann núna :)

En ég er að hugsa um að hafa þetta ekki lengra að sinni :)

Elvuz kveður :)
26. desember 2007 klukkan 18:32
Elva
2 athugasemdir
11desember

MIKIÐ AÐ GERA!!!

Ég er að fara HEIM á fimmtudaginn :)
og það er sko nóg að gera þangað til :)

Nenni ekki að blogga fyrr en að ég er komin heim ;)

-Elvuz er farin að versla jólagjafir!!!

minni á myspace.com/elvuzinn

11. desember 2007 klukkan 14:04
Elva
4 athugasemdir
10nóvember

Get ekki sofið ....

Ég þoli ekki að lyggja upp í rúmi, vita ekkert hvernig ég á að vera og bara get alls ekki sofnað :s

Er í eitthverju stuði núna, hlakka svo mikið til að kíkja út með Elvu og Beggu á morgun :) Klæða mig fínt upp á og dansa af mér rassinn, ekki veitir af :) Er á fullu að hugsa í hverju ég ætti nú að vera, verður allavega að vera fleygið svo maður komist nú inn á þessa staði hérna í rvk ;)

En ég var nú bara algjör beiler síðustu helgi og fór ekki í starfsmannapartýið, frekar sat ég bara hérna heima með Elvu og baccardi razz, með tölvuna í fanginu og var á msn/netinu til klukkan 12 (og Elva í hinni tölvunni,hehe við erum ekki nördar), síðan skutlaði Jóhanna vinkona Elvu okkur á players þar sem að eurobandið hélt uppi stöööðinu :) Eftir það skelltum við okkur síðan niður í bæ á Glaumbar :) Geggjað skemmtilegt kvöld ....:)

Skólinn gengur sinn vanagang og ég gerði mér svona námsplan í dag fram að prófum, er síðan búin að koma mér upp góðu lærdómsplássi inn í stofu með áætlunina fyrir framan mig og núna er það bara harkan sex .. Ætla að byrja strax í næstu viku að kíkja á allt námsefni fyrir próf og tek síðan alltaf eitthverja upprifjun á hverjum degi úr eitthverju fagi :) Ég er nú dáldið stolt af mér sko :) Eins gott að mér gangi þá vel í þessum bévítans prófum ...
Fór líka og sótti um lengri próftíma í dag, þar sem að ég er svo ógeðslega kvíðin fyrir próf, ég vona að lengri próftími bjargi mér ...

Ég og Begga skelltum okkur í blóðbankann á miðvikudaginn og gáfum "smá" blóð úr okkur, svo góðar :) Héðan í frá ætlum við á 4-5 mánaða fresti og gera góðverk :)

Ég er nú hrædd um það að ég geti bara ekki þraukað fram að jólum með að lita á mér hárið .. ég er svo mikil drusla að ég er ekki búin að lita á mer hárið í ár og öld og ég er hreint út sagt VIBBI núna :s .. Held ég verði bara að skella mér í kippingu og litun í næstu viku og síðan aftur fyrir jól, bara verst að þetta kostar mann MiKlA penginga, en það fylgir víst ef maður er með hár, spurning um að raka sig!!?? nnnneeeiii, held ekki ;)

-  Það verður semst stuð á minni á morgun :)
-  Næsta helgi fer síðan í eintóman lærdóm...
-  Helgina eftir það er Heiðrún min að koma OG Palladjamm á Trix í Keflavík :) Síðan lygg ég í bókunum þar á milli :)
-  Eftir þetta fer hver EINASTI klukkutími í lærdóm, jeijjjjj

Jæja, núna er þetta orðið alveg asskoti langt og leiðinlegt blogg, ég bara var í þörf að blogga, þótt ótrúlegt sé :)

Endilega verið dugleg að kommenta, nenni ekki að blogga fyrir eitthver 2-3 komment, ekki séns!!!!

Elvuz sem ætlar að reyna að sofa eitthvað ...
10. nóvember 2007 klukkan 00:22
Elva
5 athugasemdir
02nóvember

holý mólý það er kominn Nóvember :o

.....Sem þýðir að: 

  • Það eru 28 dagar í það að við fáum íbúðina okkar :D
  • Það eru 30 dagar í það að prófin byrji :S
  • Það eru 38 dagar í það að ég verði búin í prófum :)
  • Það eru 42-44 dagar í það að ég fari heim til Vopnafjarðar :)
  • Það eru 50 dagar í jólin :D


En jæja, tíminn líður nú samt ekkert fyrr þó maður telji niður :)

Ég fékk próftöfluna mína á mánudaginn síðasta og hún hljómar nú ekki neitt voðalega spennandi, ég hefði nú viljað að þau myndi verða smá dreifð en ....
Ég er semst að fara í Ísl mán 3.des, Ens þri 4.des, Lol mið 5.des, Sky fim 6.des, Nát fös 7.des og Stæ mán 10.des ... Eins og þið sjáið þá verður þetta Pain!!!
Reyndar slepp ég við skyndihjálpar prófið ef að ég fæ hærra en 7 í prófinu sem ég er að fara í í þarnæstuviku, þannig að þá gæti komið 1 auður dagur þarna á milli, sem er skárri en engin ;)

Helgin verður svona fremur róleg hjá mér, held ég nú :) Elva ætlar að kíkja núna eftir smá stund og við ætlum að bralla eitthvað saman :)
Síðan á morgun er starfsmannaparty, það verður eflaust mikið fjör :) Ég er nú samt að hugsa um að vera bara róleg og fá mér ekkert að drekka eða neitt :) Þar sem maður er nú preggó....... ;)







NEI,DJÓK!!!!
Ykkur brá, haggi ?? ;)

En Elva er að koma, þannig að ég er hætt ...

Blogga aftur von bráðar, þar sem að ég er orðin alveg helvíti dugleg í þessu bloggdæmi ;)

Elvuz is out ;)

02. nóvember 2007 klukkan 17:56
Elva
2 athugasemdir
28október

Hvernig ætli bremsuvökvi bragðist!? :)

jæja þá í þetta sinn ..

Það er bara allt gott að frétta af Einarsnesinu :) Ég fékk að vita það um daginn að það er eitthver biðstaða hjá fólkinu sem við vorum að kaupa af þannig að við fáum íbúðina ekkert fyrr, allavega ekki mikið fyrr :s Sem þýðir að við erum bara að fá hana þegar ég er akkurat að byrja í prófum ... Þannig að við, eða reyndar Gissur, er bara að hugsa um að mála og svona meðan ég klára þessi próf, síðan nota ég helgina eftir prófin til að snurfusa eitthvað :) Síðan ætla ég bara að stinga af heim 17 eða 18 des og ætli við flytjum nokkuð fyrr en bara eftir áramót..En þar sem að tíminn líður svo asskoti hratt að þá verða jólin og áramótin og allt það búið bara áður en maður veit af :)

Það var stelpukvöld hjá mér á föstudaginn :) Elva og Begga komu til mín og við borðuðum, spjölluðum, borðuðum, horfðum á Köld slóð (Sem er geðveik mynd), borðuðum aðeins meira og höfðum það kósý :) Ekki neitt smá gaman ;) Elska ykkur rúsínur ;*

Ég og Ragna fórum inn í N1 um daginn til að kaupa bremsuvökva, sem er nú ekki frásögufærandi :p En síðan fór ég og borgaði og það er sko greynilegt að stelpan sem að var að afgreiða segji alltaf sömu hlutina aftur og aftur því að hun renndi kortinu í gegn og rétti mér það síðan og sagði "Gjörðu svo vel og verði þér að góðu" hahahah .. ég gat ekki annað en hlegið og sagði síðan "herðu já takk fyrir það, þó svo að ég efist um að ég drekki þetta" hehe :) En það getur svo sem vel verið að bremsuvökvi bragðist bara mjög vel :)

Þessar fáu myndir sem ég tók heima síðast eru ekki enn komnar inn á myndasíðuna mína þar sem að það er eitthvað klikkerí í picasa forritinu mínu í tölvunni .. En ég reyni að fara að kippa þessu í lag og hendi þá inn myndum :)

Annars held ég að ég hafi nú ekki mikið meira að segja ykkur, ætlaði bara svona rétt að láta vita af mér :)
Ég minni á myspace síðuna mína www.myspace.com/elvuzinn , alltaf gaman að fá skemmtileg comment :)

Komin tími til að halda áfram að læra núna, þar sem að ég ÆTLA að standa mig eins vel og ég get í skólanum núna :)

Kveð að sinni ....
28. október 2007 klukkan 19:55
Elva
2 athugasemdir
16október

Komin í borg óttans aftur :)

Helgin heima var hreint út sagt æðisleg :) Það var svo æðislegt að hitta mömmu, Andreu, Ömmu og afa :) og að sjálfsögðu bara alla sem ég hitti :)
Langaði nú eiginlega ekkert að koma hingað aftur.... ;)

Ég, Begga og Elva fórum semsagt heim til Vopnafjarðar á miðvikudaginn og vorum fram á sunnudag:)
Allir dagarnir fóru bara í róleg heit nema föstudagskvöldið var tekið í OF öflugt djamm, held það er best að orða það þannig ;p Begga varð tvítug þann dag og var ég á hlaupunum um kvöldmatarleytið til að undirbúa smá heima hjá Jimmy, ég skrifaði með stórum stöfum Happy Birthday Begga og límdi upp á vegg og bjó síðan til Kórónu líka, til að allir myndu nú vita hver Begga væri ;) Fór síðan heim til Beggu og náði henni síðan ekkert til Jimmy´s, þannig að þetta var algjörlega tilgangslaust :p
En síðan um nóttina gerðist hræðilegur atburður, það var traðkað ofan á mér og ég er annað hvort mjög illa marin eða tognuð ... og þetta er ógeðslega vont :s Ég skakklappast hérna um allt .. :p

En núna er bara alvaran tekin við, skóli og vinna ...
Það er nú samt eitthvað svo stutt þangað til skólinn klárast :) Sem þýðir að það er ábyggilega frekar stutt í það að við fáum íbúðina okkar :D Ég hreinlega get ekki beðið :)

En ég ætla að henda myndum inn á netið núna snöggvast og síðan kem ég með skemmtilegra blogg seinna.. Nenni þessu engan vegin núna ;)
Takk æðislega fyrir helgina elskurnar mínar :***
Sakna mömmu, pabba, Andreu, ömmu og afa mjöööög mikið :***

Elvuzinn kveður að sinni ....
16. október 2007 klukkan 10:32
Elva
1 athugasemd
12október

Æðislegt að vera heima :)

Vil Byrja á að óska henni Beggu minni Til hamingju með afmælið :* Gellan er orðin 20 ára :) Stefnan í kvöld er tekin á djammið, og það á að vera party heima hjá Jimmy sem er víst í tilefni af afmælinu hennar Beggu ;)

Ég er heima á Vopnafirði núna, og það er Bara Æðislegt!!
Það er svo rólegt og gott að vera hérna, þó svo að borgin sé nu ekki alslæm ;)

Ég, Begga og Elva komum hingað á miðvikudaginn og planið er að fara aftur suður um hádegi á sunnudaginn ...

Það styttist alltaf í það að ég og Gissur fáum íbúðina okkar, þó svo að ég viti ekkert um það hvenær við fáum hana, en það verður nú ábyggilega í nóvember :p

Jæja, ætlaði nú bara að henda inn nokkrum línum..
Hvet alla sem eru á Vopnafirði að kíkja á djammið í kvöld ;)

Blogga eftir helgina, og myndavélin verður á lofti í kvöld :)

Later, Elvuz ...
12. október 2007 klukkan 17:55
Elva
Engin athugasemd

Eigandi síðunnar: :)

  • Nafn: Elva
  • Netfang: smash_elva@hotmail.com
  • Heimilisfang: Ferjubakki 10
  • Atvinna: fyrir og eftir :)
  • Hjúskaparstaða: í sambúð
  • Um mig: Ég er lítil saklaus sveitastelpa sem er flutt í borgina og er tilbúin til að takast á við það að breytast í snargeðveikt borgarbarn ;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins